Saumastofa Batik
Saumastofa Batik (áður saumastofa ÖBI)
Saumastofunni var lokað í júlí 2011. Batik ehf keypti vélar, tæki, efnis- og fatalager saumstofunnar um miðjan ágúst 2011. Hluti starfsmanna hafa ráðið sig til Batik og reksturinn var fluttur að Bílshöfða 16 frá 1 september 2011. Batik rekur silkiprentunar- og broderingsþjónustu og selur fjölbreyttan fatnað, töskur, húfur o.fl . Með kaupum á saumastofunni vonast Batik til að geta veitt viðskipavinum fyrirtækisins enn betri þjonustu með auknu vöruúrvali, sérframleiðslu og merkingum á fatnaði. Mun fyritækið kappkosta að bjóða gæða fatnað úr vönduðum efnum.
Ágrip af sögunni
Saumastofa ÖBÍ var stofnuð árið 1981. Þá gáfu hjónin Ingibjörg Hallgrímsdóttir og Björn Guðmundsson Öryrkjabandalagi ísland saumavélar og önnur tæki saumastofu sinnar.
Frá upphafi hefur saumastofan framleitt og selt léttan vinnufatnað, svo sem jakka, sloppa, svuntur, buxur, samfestinga og annan slíkan vinnufatnað fyrir fólk í framleiðslu-, umönnunar- og þjónustustörfum. Einnig kórkirtla og fermingarkirtla.
Helstu viðskiptavinir okkar eru snyrtistofur, bakarí, sælgætisgerðir, verslanir, dvalarheimili, heilsugæslur, sjúkrahús, læknastofur, tannlæknar, lyfjafyrirtæki, veitinga og matsölustaðir, hótel og gistiheimili og skólar um land allt.
Saumastofan annast einnig stærri og minni sérsaumaverkefni fyir fyrirtæki og stofnanir.
Forstöðumaður Saumastofu er Harpa Mjöll Kjartansdóttir
Heimilisfang:
Batik ehf,
Bíldshöfði 16,
110 Reykjavík
Sími 557-2200, fax 557-2263
http:// www.batik.is
Saumastofa@saumastofa.is
English Manager of saumastofa Batik ehf is Svanborg Sif Sigurjónsdóttir

