Um Saumastofu
Saumastofa ÖBÍ
Ágrip af sögunni
Saumastofa ÖBÍ var stofnuð árið 1981. Þá gáfu hjónin Ingibjörg Hallgrímsdóttir og Björn Guðmundsson Öryrkjabandalagi ísland saumavélar og önnur tæki saumastofu sinnar.
Frá upphafi hefur saumastofan framleitt og selt léttan vinnufatnað, svo sem jakka, sloppa, svuntur, buxur, samfestinga og annan slíkan vinnufatnað fyrir fólk í framleiðslu-, umönnunar- og þjónustustörfum. Einnig kórkirtla og fermingarkirtla.
Helstu viðskiptavinir okkar eru snyrtistofur, bakarí, sælgætisgerðir, verslanir, dvalarheimili, heilsugæslur, sjúkrahús, læknastofur, tannlæknar, lyfjafyrirtæki, veitinga og matsölustaðir, hótel og gistiheimili og skólar um land allt.
Saumastofan annast einnig stærri og minni sérsaumaverkefni fyir fyrirtæki og stofnanir.
Markmið
Markmið Saumastofunnar er að veita fólki með fötlun tímabundna starfsþjálfun og/eða vinnu til frambúðar. Saumastofa ÖBÍ er deild innan Vinnustaða ÖBÍ sem er í eigu Öryrkjabandalags Ísland og rekið á ábyrgð þess. Hjá okkur starfa að jafnaði 12-14 starfsmenn, flestir fatlaðir.
Forstöðumaður Saumastofu er Harpa Mjöll Kjartansdóttir

Heimilisfang:
Vinnustaðir ÖBÍ - Saumastofa
Hátúni 10
105 Reykjavík
Beinn sími: 552-6802

